Fara í meginmál

Um okkur

Púlsinn ehf. — raf- og kæliþjónusta á Akureyri frá árinu 1988.

  • Vottun frá Umhverfisstofnun (F-gas)
  • Co2 Academy Holland
  • Meistarabréf
  • Frá 1988

Sagan

Föstudaginn 20. maí 1988 var fyrirtækið Púlsinn ehf. stofnað á Akureyri af Sæmundi sem var rafvirkjameistari og sá um þjónustu á vélum Sambandsins í verksmiðjum sem stóðu þar sem Glerártorg stendur núna á Gleráreyrum.

Í upphafi árs 2024 var eignarhaldi félagsins skipt á Birki, Bjarka og Kristin sem starfa áfram við reksturinn og halda þeirri þjónustu áfram sem fyrirtækið hefur byggt upp frá stofnun.

Starfsmenn Púlsins við þjónustubíl fyrirtækisins
Starfsmenn Púlsins við þjónustubíl fyrirtækisins

Vottanir

  • Púlsinn er með gilda vottun frá Umhverfisstofnun um meðhöndlun á F-gas kælimiðlum.

  • Allir starfsmenn eru með F-gas vottun og hafa tekið námskeið í uppsetningu og þjónustu Co2 kerfa hjá Co2 Academy í Hollandi.

  • Kristinn og Birkir eru skráðir með gild meistarabréf.

Bakvakt

Hjá Púlsinum er alltaf maður á bakvakt sem getur brugðist við áður en tjón verður á matvælum. Neyðarsími: 760-5670.

Starfsmenn

Samstarfsaðilar

  • BVT — Bako Verslunartækni
  • VK vörukaup
  • Advansor
  • Danfoss
  • RØKA
  • Bitzer

Fáðu fagmenn í verkið

Hjá Púlsinum er alltaf maður á bakvakt sem getur brugðist við áður en tjón verður á matvælum.

Neyðarsími: 760-5670