Kælideild
Kæli- og frystiþjónusta fyrir matvælaiðnað, verslanir og vöruhús.
Kælideild Púlsins sinnir uppsetningu, viðhaldi og viðgerðum á kæli- og frystibúnaði. Starfsmenn okkar hafa margra ára reynslu af kælikerfum og allir eru með gilda F-gas vottun.
Við vinnum með viðskiptavinum okkar í því að finna þá kælilausn sem hentar rekstrinum best — hvort sem um er að ræða eitt kælitæki eða heilt kerfi fyrir stórt vöruhús.
Þjónustusamningar með fyrirbyggjandi viðhaldi
Við bjóðum upp á þjónustusamninga með fyrirbyggjandi viðhaldi. Reglulegar þjónustuheimsóknir tryggja að kerfin skili réttu hitastigi, nýti orkuna vel og að vandamál finnist áður en þau valda tjóni.
Í hverri heimsókn er farið yfir búnaðinn, framkvæmd lekaleit og skráð viðhaldsskrá sem nýtist við eftirlit heilbrigðiseftirlits.
Í þjónustusamningi felst meðal annars
- Reglulegar þjónustuheimsóknir samkvæmt samkomulagi
- Fyrirbyggjandi viðhald á kæli- og frystikerfum
- Lekaleit á kælimiðlum
- Viðhaldsskrá fyrir heilbrigðiseftirlit
- Forgangur í útköllum og aðgangur að bakvakt
Bakvakt allan sólarhringinn
Hjá Púlsinum er alltaf maður á bakvakt sem getur brugðist við áður en tjón verður á matvælum.
Neyðarsími: 760-5670
Kæli- og frystilausnir fyrir matvælaiðnað, verslanir og vöruhús
Púlsinn þjónustar bændur, vöruhús, verslanir, brugghús, framleiðslu og matvælaiðnað. Við setjum upp og þjónustum kæliklefa, frystiklefa, kæliborð, kælikerfi verslana og stærri vélakerfi fyrir vinnslur.
Réttur kuldi á réttum stað skiptir lykilmáli í matvælarekstri og því leggjum við áherslu á áreiðanlegan búnað, góða vöktun og skjót viðbrögð.

Fáðu fagmenn í verkið
Hjá Púlsinum er alltaf maður á bakvakt sem getur brugðist við áður en tjón verður á matvælum.