Co2 kerfi
Co2 kælikerfi — framtíðarlausn fyrir kælingu, frystingu og hitun.
Púlsinn er með mikið úrval af Co2 kerfum, til dæmis frá Advansor. Co2 kerfi eru náttúruleg lausn sem hentar vel þar sem gerðar eru kröfur um öflug og áreiðanleg kerfi.
Allir starfsmenn Púlsins hafa tekið námskeið í uppsetningu og þjónustu Co2 kerfa hjá Co2 Academy í Hollandi.
Co2 lausnir frá Advansor
- Sambyggð kæli- og frystikerfi
- Kælikerfi fyrir glycol
- Loftkælingar fyrir stór verslana- og skrifstofurými
- Varmadælukerfi vatns fyrir stór fyrirtæki og bæjarfélög
Þjálfun hjá Co2 Academy í Hollandi
Starfsmenn Púlsins hafa tekið námskeið í uppsetningu og þjónustu Co2 kerfa hjá Co2 Academy í Hollandi, auk þess sem allir eru með gilda F-gas vottun.

Fáðu fagmenn í verkið
Hjá Púlsinum er alltaf maður á bakvakt sem getur brugðist við áður en tjón verður á matvælum.