Hitastigsvöktun
Fylgstu með hitastiginu — hvar sem þú ert.
Púlsinn býður upp á wifi-tengdan búnað til hitastigsvöktunar með skýlausn og viðvörun í símann. Þannig sérðu strax ef hitastig fer út fyrir sett mörk og getur brugðist við áður en tjón verður á vörunni.
Fyrir stærri rekstur bjóðum við umfangsmeiri vöktunarkerfi sem hægt er að tengja beint við bakvakt hjá Púlsinum, þannig að okkar menn fái viðvörunina líka.
Kostir hitastigsvöktunar
- Wifi-tengdur búnaður með skýlausn
- Viðvörun beint í símann
- Yfirlit yfir hitastigsferil og skráningu
- Stærri kerfi tengd bakvakt hjá Púlsinum
- Minni hætta á tjóni á matvælum

Fáðu fagmenn í verkið
Hjá Púlsinum er alltaf maður á bakvakt sem getur brugðist við áður en tjón verður á matvælum.