Fara í meginmál

Fréttir

Fréttir og tilkynningar frá Púlsinum ehf.

  • B-Löggilding í rafvirkjun

    B-Löggilding í rafvirkjun

    Okkur gleður að kynna að Púlsinn er kominn með B-löggildingu rafvirkja.

    Birkir Guðni Guðnason og Kristinn Jónsson eru báðir með meistarabréf í rafvirkjun og vélvirkjun.

    Þá munu þessi réttindi bjóða viðskiptavinum okkar fleiri möguleika og meira öryggi við nýframkvæmdir og úttektir á rafbúnaði.

  • Vottun um meðhöndlun á F-gas kælimiðlum

    Vottun um meðhöndlun á F-gas kælimiðlum

    Púlsinn fór í vottun frá Umhverfisstofnun um meðhöndlun á F-gas kælimiðlum.

    Þá er Púlsinn kominn með vottun til að annast uppsetningar, viðgerðir, viðhald eða þjónustu án tillits til stærðar kerfisins á F-gas kælimiðlum. Allir starfsmenn hjá Púlsinum eru með gildar vottanir og við erum ánægðir að vera komnir á lista yfir þessi fyrirtæki.

  • Umfjöllun hjá DFS.is

    Umfjöllun hjá DFS.is

    Púlsinn er raf- og kæliþjónustufyrirtæki í eigu Birkis Guðna Guðnasonar, Bjarka Orrasonar og Kristins Jónssonar. Birkir er vélfræðingur, vélvirkjameistari og rafvirki sem hefur m.a. starfað hjá Expert, Rafiðnaðarsambandinu, Fossraf, Jóhann Rönning og Frostmark. Bjarki er vélfræðingur sem hefur m.a. sinnt vélstjórnarstarfi á skipum Björgunar og hjá Expert. Kristinn er útskrifaður vélfræðingur, vélvirkjameistari og rafvirki sem hefur m.a. starfað hjá Expert og hjá framkvæmda- og veitusviði Árborgar.

    Þremenningarnir kynntust þegar þeir störfuðu saman hjá Expert kælingu í um 8 ár og eru þeir allir með vottuð réttindi í að meðhöndla F-gas kælimiðla. „Við erum með um 10 ára reynslu á kæli- og frystikerfum, höfum sett upp mikið af Co2 kæli- og frystikerfum t.d. hjá Nettó og Lýsi. Höfum einnig verið í uppsetningum á stærri kæli- og frystikerfum í eldhúsum og vöruhúsum,“ segja þeir í samtali við Dagskrána.

    Lesa greinina á DFS.is

Fáðu fagmenn í verkið

Hjá Púlsinum er alltaf maður á bakvakt sem getur brugðist við áður en tjón verður á matvælum.

Neyðarsími: 760-5670